ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAUTANRÍKISMÁLDRÖG

1. fundur

miðvikudagur, 17. desember 2008

Opinn vinnufundur hjá verkhópi um utanríkis- og varnarmál


Valhöll, miðvikudaginn 17. desember kl. 12.00


Fundarstjóri var Páll Heimisson


Mættir voru: Einar Benediktsson, formaður hópsins, Jón Hákon Magnússon, varaformaður hópsins, Styrmir Gunnarsson, Ólafur Egilsson, Vilhjálmur A. Kjartansson, Gunnlaugur Snær Ólafsson, Jóhannes Runólfsson, Viðar Guðjónsen, Arngrímur Pálmason, Guðfinnur Halldórsson, Birgir Æ. Steingrímsson, Ágúst Ragnarsson, Guðrún G. Júlíusdóttir, Elínóra Inga Sigurðardóttir, Kjartan Gunnarsson, Þórdís Pétursdóttir, Drífa Hjartardóttir, Árni Helgason, Skapti Örn Ólafsson, Höskuldur Marselíusarson, Páll Heimisson.


Fundarstjóri opnaði fundinn og bauð fólk velkomið. Þvínæst gerði Jón Hákon Magnússon, varaformaður nefndarinnar grein fyrir þeim sjónarmiðum sem verkhópnum væri uppálagt að fara eftir við sína vinnu. Hvatti hann fólk til að kynna sér vinnuna á vef Evrópunefndarinnar, og ekki hika við að setja fram sín sjónarmið á vefnum.


Einar Benediktsson, tók þvínæst til máls og fór yfir málaflokka verkhópsins og hvernig staðið hefði verið að vinnu við fyrstu drög.

Eftir kynningu Einars og Jóns Hákonar að þá var opnað fyrir spurningar sem voru fjölmargar og líflegar. Gerðu sumir fundarmenn athugasemdir við að drög nefndarinnar væri sett fram með of einhliða hætti og að fjalla ætti meira um galla Evrópusambandsins. Hvöttu formenn hópsins viðstadda um að koma fleiri sjónarmiðum á framfæri á vefnum, allt myndi það nýtast störfum hópsins.

Fundi var slitið kl. 13.15.

Páll Heimisson ritaði fundargerð

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband

Sjónarmið aðildarfélaga og einstaklinga
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700