Málefnahópi þessum er ætlað að fjalla um áhrif aðildar að Evrópusambandinu á utanríkis- og öryggismál. Svara þarf mikilvægum spurningum um sameiginlega utanríkis- og varnarmálastefna Evrópusambandsins og áhrif á Ísland. Fjalla þarf um helstu viðfangsefni Evrópusambandsins á þessu sviði, stofnanir og ákvaðanatöku.
Hópnum er ennfremur ætlað að fjalla um pólitískt samráð Evrópusambandsríkjanna, hvort aðild felur í sér breytta stöðu Íslands í NATO og leggja almennt mat á stöðu Íslands í ólgusjó alþjóðasamfélagsins.
Hópnum er stýrt af Jóni Hákoni Magnússyni og Einari Benediktssyni.
Almennt er ljóst að umfangsmikil stefna Evrópusambandsins í utanríkis- og varnarmálum fellur að markmiðum Íslands á alþjóðavettvangi og framkvæmd stefnu okkar í öryggis- og varnarmálum. Ekki verður séð að í þeim málum sé þörf á fyrirvörum vegna hugsanlegrar sérstöðu eða þess að hagsmunir okkar eða geta leyfa ekki virka þátttöku í samþykktum eða aðgerðum. Á hinn bóginn er full ástæða til að árétta um þetta, aðild okkar að NATO og sömuleiðis um tvíhliða samstarf okkar við grannríki í öryggis-og varnarmálum sem haldi fullu gildi gerist Ísland aðili að Evrópusambandinu: