Fundarstjóri var Kristín Edwald
Mættir voru: Ragnhildur Helgadóttir, formaður hópsins, Katrín Helga Hallgrímsdóttir, varaformaður, Sigurgeir Jónsson, Thulin Johansen, Birgir Pétur Magnússon, Sigurður Harðarson, Agnar Johnsson, Viðar Guðjohnsen, Halldór Sigurðsson, Pétur Stefánsson, Jóhann Harðar Johansson, Ragnhildur Helgadóttir, Þór Vilhjálmsson, Gunnlaugur S. Ólafsson, Skapti Örn Ólafsson, Árni Helgason, Jóhannes Runólfsson, Þórlindur Kjartansson, Páll Heimisson
Fundarstjóri opnaði fundinn og bauð fólk velkomið. Ragnhildur Helgadóttir, formaður hópsins, gerði grein fyrir vinnu hópsins og fór yfir heimasíðu Evrópunefndarinnar. Hún fjallaði um fullveldishugtakið út frá lögfræðilegum skýringarreglum og um stjórnarskrá Íslands og hvernig þyrfti að breyta henni ef til inngöngu Íslands kæmi og gerði grein fyrir hvernig nágrannaríki okkar hafa staðið að þessu þegar þau gengu inn í Evrópusambandið.
Katrín Helga tók þá til máls og fór yfir stofnanir sambandsins. Einnig fór hún yfir Lissabonsáttmálann og hvernig hann muni breyta Evrópusambandinu ef hann verður samþykktur af öllum aðildarríkjum ESB. Tóku formenn nefndarinnar fram að von væri á ítarlegri upplýsingum um Lissabonsáttmálann inn á vefinn á næstu dögum.
Einnig fór Katrín Helga yfir ýmsa möguleika á því hvernig best væri að standa að aðildarviðræðum út frá breytingu á stjórnarskrá og þjóðaratkvæðagreiðslu.
Eftir framsögur formanna nefndarinnar að þá var opnað fyrir spurningar.
Fundir var slitið klukkan 18.30.
Fundargerð ritaði Páll Heimisson