ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐASTJÓRNSKIPANDRÖG

2. drög

fimmtudagur, 18. desember 2008

Stjórnskipun, afsal fullveldis og áhrif Íslands

Stjórnskipunin er þríþætt: a) þær grunnhugmyndir sem ríkið og stjórnskipunin byggja á (t.a.m. réttarríki, lýðræði, þrígreining o.s.frv.). b) Störf og hlutverk handhafa ríkisvaldsins (hverjir taka ákvarðanir og hvernig) og c) mannréttindi. Hugsanleg aðild að ESB myndi einkum snerta þátt b. Hinir yrðu að mestu eða öllu óbreyttir.

Hér er fjallað um eftirfarandi efnistatriði tengd stjórnskipun Íslands, fullveldi og ESB. Kaflaheitin í umfjölluninni vísa á viðkomandi kafla.

Fullveldi

  • Fullveldi er skilgreint og fjallað um framsal þess. Niðurstaðan er sú, að aðild að ESB sé óheimil að óbreyttri stjórnarskrá.

Stjórnarskrárákvæði sem heimila framsal fullveldis - hliðsjón af norrænum stjórnarskrám

  • Lýst er stjórnarskrárákvæðum sem heimila framsal fullveldis. Hliðsjón er höfð af slíkum ákvæðum í norrænum stjórnarskrám.

Stjórnarskrárbreytingar og þjóðaratkvæði

  • Ef ákveðið yrði að ganga til viðræðna við ESB þyrfti að ákvarða röð aðgerða: Stjórnarskrárbreytingar, þjóðaratkvæðis og aðildarviðræðna. Dregnir eru upp 5 möguleikar í þessu efni. Sjá líka hér sem PowerPoint-kynningu.

Stofnanir EES og ESB

  • Fjallað er um stofnanir EES og ESB og ákvarðanatöku innan ESB. Hugsanleg þátttaka Íslendinga í þessum stofnunum er áætluð. Í þessari lýsingu er fyrst og fremst miðað við núgildandi reglur en ljóst er að Lissabon-sáttmálinn breytir þessu verulega.

Dóms- og innanríkismál

  • Fjallað er um Schengen-samstarfið, Lúganó-samninginn og stuttlega um gjaldþrota- og sifjamál.

Lissabon-sáttmálinn

  • Gerð er stutt grein fyrir Lissabon-sáttmálanum og núverandi stöðu hans.
  • Nánari lýsing á Lissabon-sáttmálanum er í vinnslu og væntanleg á vefinn milli jóla og nýárs.

 

 

 

Athugasemdir

Guðjón Hilmar Jónasson
Hella
26/12/2008 - Kl. 17:23

Spurnigar til ykkar?
Hver yrði Þingmannatala Ísland á Evrópuþinginu við inngöngu Íslands í ESB.

Fengi Ísland fastafulltrúa í stjórnarnefnd ESB?

Með fyrirfram þökk
Hilmar Jónasson

Georg Brynjarsson
Reykjanesbær
26/12/2008 - Kl. 20:14

Þingmannatala Íslands yrði væntanlega 5-6 fyrir Lissabon sáttmálann en 6 eftir hann.

Hjörtur J. Guðmundsson
Reykjavík
27/12/2008 - Kl. 17:22

Hilmar:
Hér getur þú lesið allt um þetta:
http://heimssyn.blog.is/blog/heimssyn/entry/324931/

Sigurður Viktor Úlfarsson
Reykjavík
28/12/2008 - Kl. 20:56

Hvers vegna er verið að tengja lög um þjóðaratkvæðagreiðslur ESB aðild?

Það er auðvitað fráleitt að það skuli ekki vera til lög um þjóðaratkvæðagreiðslur á Íslandi og Alþingi ber að senda frá sér lög þess efnis hið snarasta hvort heldur sem við ætlum í aðildarviðræður við ESB eða ekki.

Viðar Guðjohnsen eldri
Reykjavík
29/12/2008 - Kl. 01:10

Fullveldi er tilfinningarmál einnig.

Að halda að það sé hægt að hraðsjóða fyrir landsfund eitthvað vitrænt og segja þetta er sá tími sem okkur sé skammtaður kallar á svar sem ég vil ekki setja á prent.

Við gátum ekki lesið EES samninginn til enda og afleiðingar hans.

Við erum kannski ekki bestu samningarmenn í heiminum. Allavega ekki fyrir okkur sjálf.

Það er styrkur að vita sína veikleika.

Þjóðin öll þarf að vera vel upplýst ekki bara þröngur hópur manna.

Haraldur Ólafsson
Reykjavík
03/01/2009 - Kl. 14:53

Fullyrt hefur verið að til að taka þátt í samstarfi innan
Evrópusambandsins þurfi sérhver aðildarþjóð að leggja
til allt frá nokkur hundruð upp í nokkur þúsund embættismenn
sem ýmist vinni í heimalöndunum eða í miðsöðvum
bandalagsins. Vita nefndarmenn til þess að þetta hafi
verið athugað? Hver skyldi verða líkleg þróun þessa fjölda
eftir því sem samrunaferlinu innan Evrópusambandsins
vindur fram?

Hjörtur J. Guðmundsson
Reykjavík
03/01/2009 - Kl. 20:37

Haraldur:
Svo ég leyfi mér að bregðast við þessari góðu fyrirspurn þó henni hafi ekki verið beint til mín þá eru allar líkur á að embættismönnum á öllum stigum Evrópusamrunans muni fjölga verulega í framtíðinni. Þannig hefur þróunin verið til þessa og litlar líkur á að það breytist. Hér eru tenglar á tvær umfjallanir sem tengjast þessu máli:

Aðeins toppurinn á stærðarinnar ísjaka
http://www.heimssyn.is/page_11.html?news_article=106230137

How Many People Work For The EU?
http://openeuropeblog.blogspot.com/2007/01/how-many-people-work-for-eu.html

Ragnhildur Helgadóttir
Reykjavík
06/01/2009 - Kl. 02:02

Sæll Haraldur og takk fyrir ábendinguna. Við höfum ekki skoðað þetta alveg beint, nei. Grein Jóhönnu Jónsdóttur hér á síðunni um áhrif Íslands er hins vegar um mjög tengt efni.

Þröstur Jónsson
Egilsstaðir
09/01/2009 - Kl. 11:22

Ég held það sé öllum holt að horfa á þetta myndskeið frá Evrópuþinginu.

http://www.youtube.com/watch?v=QVeMBNB0cII&feature=related

Er það virkilega þetta sem við viljum. Hvernig halda menn að íslenskum evrópuþingmönnum muni ganga að verja hagsmuni Íslands þarna inni ef þess þarf í framtíðinni með 0,04% fólksfjölda á bak við sig?

Júlíus Björnsson
Reykjavík
06/02/2009 - Kl. 00:39

Lissabon-sáttmálinn er það ekki annað orð yfir stjórnarskrá Evrópu. Eru upphafleg áform Frakka um þjóðverja ekki upphafið að endanum. Allir munu búa við jöfn lífskjör óháð því hvar þeir búa.
Danska Útgáfan af stjórnarskránni http://www.forfatning.dk/.

250 blassíður segir það ekki allt um frelsisskerðinuna, eða það að hún er rétthærri þeim sem bandalagsríkin hafa. Ef ég skil dönsku rétt er þjóðarauðlinda réttur ekki lengur á dagsskrá innan ESB. Fiskafurðir, Landbúnaðarafurðir, grænmeti og ávextir skulu ávalt vera á lægsta hugsanlega verði handa lávörusvæðinu ESB. Það er líka gaman að skoða sérákvæði um Frönsku eyjarskeggjanna og þá á Kanaríeyjum. Mörlandar var orðið sem við höfðum hjá Danska efnahagsbandalaginu á sínum tíma.

Svo munu um 0,1 % hinna Fornu nýlendu þjóða vera forréttinda stétt leynt eða ljóst. Það samsamsvarar 330 manns hér. Kjaradómur nær til 700 núna.

Ef ég þekki Frakka og Þjóðverja rétt hvað varðar nákvæmni í útreikningum [smámunasemi] þá er best að taka upp Dollar strax og kosningafyrirkomulag í líkingu við það Finnska og Bandaríska og viðurkenna ASÍU sem heimsálfu í öðru ef ekki fyrsta sæti sem fyrst. Hámarka arðinn og jöfn tækifæri allra til að græða eiga alltaf að vera hinn Gullni meðalvegur Hægristefnunnar að mínu mati. Fyrstir koma fyrstir fá. Knúið á og fyrir yður mun upplokið verða.

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband

Sjónarmið aðildarfélaga og einstaklinga
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700