Mættir voru: Hanna Katrín Friðriksson, formaður verkhóps, Ásta Þórarinsdóttir, varaformaður, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Rúna Malmquist, Yrsa Þórðardóttir, Helga Hafliðadóttir, Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, Erna Nielsen, Bjarndís Lárusdóttir, Valgerður Sigurðardóttir, Hildur Hálfdánardóttir, Margrét K. Sigurðardóttir, Sirrý Hallgrímsdóttir, Camilla Ósk Hákonardóttir, Gunnlaugur Snær Ólafsson, Jón Sigurðsson, Erla Ósk Ásgeirsdóttir, Guðrún B. Vilhjálmsdóttir, Jarþrúður Ásmundsdóttir og Skapti Örn Ólafsson.
Hanna Katrín bauð fundarmenn velkomna, kynnti starf verkhópsins og fyrirkomulag fundarins. Þá fór hún yfir helstu áhersluatriði verkhópsins, en þau má finna hér á vefsíðunni.
Ásta kynnti vefsíðuna og hvatti fundarmenn til að taka þátt í starfi verkhópsins með því að kynna sér það efni sem komið er þar inn og taka þátt í umræðum á vefsíðunni.
Á fundinum spunnust nokkrar umræður m.a. um eftirfarandi atriði:
- Ábyrgð embættismanna innan ESB
- Lissabonsáttmálann og 46. grein sáttmálans
- Starfshætti Evrópuþingsins
- Mannréttindasáttmála Evrópu
Þá settu fundarmenn m.a. eftirfarandi spurningar fram á fundinum:
- Eiga Íslendingar að fara í viðræður við ESB um inngöngu?
- Færist ákvarðanataka frá almenningi við inngöngu í ESB?
- Er lýðræðisskortur innan ESB?
- Þarf að skoða aðra kosti en ESB?
- Hvernig virkar EES samningurinn, þarf að breyta honum?
Kom fram í máli fundarmanna að umræða um ESB hafi hingað til verið mjög tæknileg og að færa þurfi umræðuna nær fólki og setja hana fram á „mannamáli". Þá kom einnig fram að nauðsynlegt væri að setja fram einfaldari og betri upplýsingar um ESB fyrir almenning.
Fundinn sátu stjórnarmenn í eftirfarandi fastanefndum Sjálfstæðisflokksins: Menningarmálanefnd, Fjölskyldunefnd og nefnd um málefni eldri borgara.
Á fundinum kynntu stjórnarmenn nefndar um málefni eldri borgara sín sjónarmið.
Góðar ábendingar bárust frá fundarmönnum er snerta starf Evrópunefndarinnar og vefsíðuna.
Þökkuðu Hanna Katrín og Ásta fundarmönnum fyrir góðan fund sem var bæði líflegur og skemmtilegur.
Fleira ekki gert og fundi slitið klukkan 13:20.
Fundargerð ritaði Skapti Örn Ólafsson.