Fundarstjóri var Páll Heimisson
Mættir voru: Gylfi Zoëga, formaður verkhópsins, Ársæll Valfells, varaformaður, Halldór Benjamín Þorbergsson, Þorkell Ragnarsson, Sigurður Gunnlaugsson, Páll Bragason, Guðmundur Snorrason, Elínóra Inga Sigurðardóttir, Anna Linda Bjarnadóttir, Arngrímur Pálmason, Ingvar J. Karlsson, Haukur Sigurðsson, Styrmir Gunnarsson, Ívar Pálsson, Jóhannes Runólfsson, Sigurður Kári, Þórlindur Kjartansson, Ágúst Ragnarsson,Birgir, Kristján Þórarinsson, Viðar Guðjohnsen, Björn Einarsson, Kristján Wendel, Friðrik Hansen.
Gylfi Zoëga opnaði fundinn og bauð fundarmenn velkomna. Þvínæst fór hann yfir vinnu hópsins og þau drög sem liggja fyrir á vefnum. Gerði hann grein fyrir peningamálum á Íslandi og hvernig þeim hefi verið háttað undanfarin ár. Einnig gerði hann grein fyrir þeim kostum sem núverandi kerfi býður upp á og ókostum. Þvínæst fór hann yfir þá aðra möguleika sem eru í stöðunni vilji Ísland taka upp nýjan gjaldmiðil og kostum og ókostum mismunandi leiða.
Eftir framsögu Gylfa að þá var opnað fyrir spurningar sem voru mjög líflegar og áhugaverðar.
Fleira var ekki rætt. Fundi var slitið kl. 14.15
Fundargerð ritaði Páll Heimisson