ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAAUÐLINDIRFRÉTTIR

Fyrsti fundur auðlindahóps

sunnudagur, 14. desember 2008

Fyrsti opni vinnufundur auðlindahóps Evrópunefndarinnar verður haldinn í Valhöll mánudaginn 15. des. kl. 16:00. Allir eru velkomnir. Friðrik Sophusson, formaður hópsins og Bjarni Már Magnússon, varaformaður kynna verkefni hópsins. Því næst verður opnað fyrir umræður. Fundurinn er haldinn í samvinnu við sjávarútvegs- og auðlinda- og umhverfisnefnd flokksins.

Á vef auðlindahópsins hafa verið settir tenglar á efni sem tengist málefni nefndarinnar. Sjá nánar.

 

Athugasemdir

Arngrímur Pálmason
Reykjavík
16/12/2008 - Kl. 00:53

Reykjavík 27 sept.08
ESB innganga Íslands og innganga í EVRÓPSKA myntbandalagið tekur í það mynsta tvö til þrjú ár.
Og hversvegna EINBLÍNA ALLIR Í EVRU ÁTT SEM TEKUR
svona langan tíma (minst tvö til þrjú ár) auk þess getum við Íslendingar aldrei náð verðbólgu og vöxtum niður í þá tölu sem Evrópska myntbandalagið krefst til að leyfi
fáist fyrir upptöku EVRU á tveim til þrem árum. Ef við Íslendingar reynum við EVRU upptöku í gegn um myntbandalag Evrópu verðum
við að slökva á nánast öllum hjólum atvinnulífsins næstu tvö til þrjú árin til að nálgast kröfur myntbandalagsins um vexti og veðbólgu.OG SPURNINGIN ER HVAÐA ÍSLENDINGUR VIL SLÖKKVA NÁNAST ALLA ATVINNUSTARFSEMI Á ÍSLANDI NÆSTU
TVÖ TIL ÞRJÚ ÁRIN. (ég held að engin íbúi Íslands sé tilbúin til þess)
HVAÐ ER ÞÁ TIL RÁÐA. (krónan verður að víkja það sjá allir) hvað getum við tekið í staðin. dollar,yen,pund,norska krónu,sænska krónu,danska krónu,CANADA dollar, svissneskan franka.EITTHVAÐ ANNAÐ.
Sennilegast er SVISSNESKI FRANKIN HEPPILEGASTUR
enda erum við í bandalagi með SVISS bandalagi sem einusinni var STÓRT. En er nú einungis bandalag
SVISS,ÍSLANDS,LICTENSTEIN,NOREIGS.
landa sem öll hafa það að ósk að standa UTAN VIÐ
EVRÓPUBANDALAGIÐ þvi þau öll telja hag sínum betur
borgið utan evrópubandalagsins.í þessum fjórum löndum búa 12 til 13 milljónir manna samtals.
SPURNINGIN ER AFHVERJU ER EKKI HÆGT AÐ STOFNA.
Myntbandalag EFTA landa og það strax.
Það má auðveldlega færa rök fyrir því að öll 4 löndin
hefðu gríðarlegan hag af sameigninlegri mynt og svona
myntbandalag ætti auðveldlega að vera hægt að stofna
á ÖRFÁUM mánuðum en ekki tveim til þrem árum.
Sviss,Ísland,Lictenstein,Noreigur. eru mæld af ALÞJÓÐA
STOFNUNUM,sem 4 af tíu ríkustu þjóðum í heiminum.
Auk þess er SVISSNESKI FRANKIN TALIN AF ÖLLUM BÖNKUM Í HEIMINUM EIN STÖÐUGASTI GJALDMIÐIL
Í HEIMINUM.Og það að byggja EFTA myntbandalag í
kringum EFNAHAG SVISS,ÍSLANDS,LICTENSTEIN,NOREIGS.
ætti bara að vera spennandi verkefni,fyrir.ÞESSAR FJÓRAR ÞJÓÐIR.Sérstaklega Íslendinga,
sem löngum hafa státað af því að vera frumkvöðlar
í mörgu.Auk þess má gera að því skóna að ef EFTA
myntbandalag yrði að veruleika,MYNDU MARGAR AÐRAR þJÓÐIR VILJA GANGA INN LÍKA,og kanski
gætu Íslendingar í framtíðini STÁTAÐ AF ÞVÍ
AÐ HAFA VERIÐ FRUMKVÖÐLAR AÐ STOFNUN
EFTA myntbandalagi. SEM í framtíðini væri orðið
STÆRRA EN myntbandalag EVRÓPUBANDALAGSINS.
ÞÁ FYRST VÆRU ÍSLENDINGAR RAUNVERULEGIR FRUMKVÖÐLAR. Ég segi endurvekjum strax EFTA og 0g gerum það verulega gildandi í HEIMI FRAMTÍÐAR.

Halldór Pétursson
Reykjavík
16/12/2008 - Kl. 08:46

Takk fyrir þennan fyrsta fund í gær. Hann einkenndist kannski full mikið af stöðutökum með eða á móti ESB umsókn en þarna voru þó gagnlegar umræður líka.

Tvö atriði sem mig langar að benda á:

Vatn er ekki bara auðlind til raforkuframleiðslu. Vatn er ekki síður auðlind sem drykkjarvatn og verður æ mikilvægari sem slík í framtíðinni.

Í yfirferðinni á áhrif ESB aðildar á fiskveiðar er mikilvægt að skoða ekki bara galla aðildar, heldur líka hugsanlega kosti. Umræðan hefur einskorðast við að greina neikvæð áhrif aðildar. Til að sjá heildarmyndina þarf að skoða hvoru tveggja.

Kári Sölmundarson
Reykjavík
17/12/2008 - Kl. 10:01

Í ljós þess að formaður nefndarinnar mótmælti því að embættismenn ESB hefðu hafnað yfirráðarétti Íslendinga yfir auðlindum hafsins set ég hér inn nokkra "linka" á fréttir þar sem þeir staðfesta fullyrðingu mína:
Franz Fischler: http://www.nrk.no/nyheter/okonomi/4121295.html
Olli Rehn: http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item238026/
Olli Rhen: http://www.visir.is/article/20081108/FRETTIR02/127473510&SearchID=73335945784504

Ég tel því málin lítu út eins og Olli Rhen segir í Fréttabl.:"hægt sé að finna lausn sem báðir aðilar geti við unað. Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi." Þarna er seinni málsgreinin lykilatriði og ber að skilja á þann veg að Íslendingar verða að vilja.

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband

Sjónarmið aðildarfélaga og einstaklinga
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700