Náttúruauðlindir Íslands og yfirráð yfir þeim

Málefnahópi um náttúruauðlindir er ætlað að fjalla um áhrif aðildar að Evrópusambandinu á eignarhald, stjórnun og nýtingu íslenskra náttúruauðlinda. Fjallað verður um fiskistofna og sameiginlega fiskveiðistefnu ESB. Svara þarf lykilspurningum um veiðirétt, hvernig ákvörðunum um heildarafla yrði háttað, um flökkustofna, brottkast, kvótahopp og eftirlit með veiðum svo fátt eitt sé nefnt. Jafnframt hvort sérlausnir séu mögulegar.

Hópnum er einnig ætlað að fjalla um orkuauðlindir, nýtingu og stjórnun á þeim hvort heldur er um endurnýjanlega orkugjafa að ræða eða hugsanlegar nýjar auðlindir sem íslendingar munu nýta í framtíðinni eins og olíu. Loks er hópnum ætlað að fjalla um hálendið, loftlagsmál og Norðurskautið.

Hópnum er stýrt af Friðriki Sophussyni og Bjarna Má Magnússyni.

Fréttir

Um hvað yrði samið?

7. janúar 2009

Eiríkur Tómasson forstjóri Þorbjörns ehf. í Grindavík og varaformaður LÍÚ, og Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, eru framsögumenn á opnum fundi í Valhöll á fimmtudaginn 8. janúar klukkan 12.

Drög

Náttúruauðlindir Íslands og yfirráð yfir þeim

20. janúar 2009

Undanfarinn mánuð hefur auðlindahópur Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins skoðað frá ýmsum sjónarhornum hvaða áhrif það hefði á yfirráð Íslendinga yfir auðlindum sem Íslendingar nýta og munu hugsanlega nýta ef Ísland gengi í ESB. Hópnum var í megindráttum falið að fjalla um þrjá málaflokka sem hann og gerði. Í fyrsta lagi var hin sameiginlega sjávarútvegsstefna sambandsins könnuð. Eftirfarandi þættir voru sérstaklega skoðaðir: Meginreglan um hlutfallslegan stöðugleika, veiðiréttur, ákvörðun heildarafla, sjávarspendýr, alþjóðlegir fiskveiðisamningar og fiskveiðisamningar við ríki utan ESB, brottkast, kvótahopp, eftirlit með veiðum, íslenska kvótakerfið og viðhald þess, sérstök stjórnunarsvæði og hvort einhverjar sérlausnir séu í boði fyrir Íslendinga.

Pistlar

Ræða Friðriks J. Arngrímssonar á fundi auðlindahóps nefndarinnar

9. janúar 2009

Ágætu sjálfstæðismenn.

Friðrik Sophusson (formaður auðlindahópsins) fór þess á leit við mig að ég gerði grein fyrir því af hverju íslenskur sjávarútvegur er andvígur því að Ísland gerist aðili að Evrópusambandinu.

Svarið við því er einfalt. Við teljum að það komi ekki til álita að undirgangast sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna vegna þess að með því þyrftum við íslendingar að gefa eftir forræðið á einni mikilvægustu náttúruauðlind okkar.

 

Drög að ályktunum
3. drög - 20. janúar 2009
2. drög - 20. janúar 2009
3. drög - 16. janúar 2009
Fundargerðir
1. fundur - 19. desember 2008
2. fundur - 18. desember 2008
1. fundur - 18. desember 2008
Á döfinni
 
Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband

Sjónarmið aðildarfélaga og einstaklinga
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700