1. fundur
miðvikudagur, 17. desember 2008
Opinn vinnufundur hjá verkhópi um hagsmuni atvinnuveganna
Valhöll, miðvikudaginn 17. desember kl. 17.00
Mættir voru: Ásdís Halla Bragadóttir, formaður verkhópsins, Finnur Oddsson, varaformaður verkhópsins, Heiðrún Ýr Júlíusdóttir, Elínóra Inga Sigurðardóttir, Elías Pétursson, Erna Gísladóttir, Haukur Alfreðsson, Andri Heiðar Kristinsson, Rakel Sveinsdóttir, Jón Steindór, Bjarni Már, Knútur Sigurðsson, Snorri Sigurðsson, Drífa Hjartardóttir, Bragi Steingrímsson, Styrmir Gunnarsson, Jóhannes Runólfsson, Brynjólfur Ægir Sævarsson, Guðrún Ragnarsdóttir, Páll Heimisson.
Ásdís Halla opnaði fundinn og bauð fólk velkomið. Hún fór þvínæst yfir hvað hópurinn hefði gert fram að þessu og kynnti fyrstu drög hans lítillega. Finnur Oddsson tók þvínæst við og skipti fólki upp í 3 vinnuhópa sem skyldu skerpa og dýpka efnistök og umfjöllun um kosti og galla við mismunandi leiðir í peningamálum sem helstu hagsmunaaðilar atvinnuveganna höfðu dregið fram og kynnt voru á fundinum (sjá skjal hér). Síðan fengu hóparnir 40 mínútur til að ræða 4 spurningar sem settar voru fyrir og svo loks kynntar í lokin.
Spurningarnar sem ræddar voru og sjónarmið úr hópunum eru eftirfarandi:
Koma öll sjónarmið fram í svörum hagsmunasamtakanna, þ.e. allir þeir kostir og gallar sem þið teljið annars vegar vera á einhliða upptöku annars gjaldmiðils og hins vegar inngöngu í Evrópusambandsins og upptöku Evru? Vantar einhverja kosti? Vantar einhverja galla?
- Þarf að vera 3ji valkostur sem er samningur við önnur ríki og þar með annan seðlabanka um nýjann gjaldmiðil.
- Vantar uppl. Um hvaða fríverslunarsamningar falla niður ef við göngum inn í ESB.
- Hvað kostar okkur að standa utan ESB, gjaldmiðillinn, vaxtamuninn osfrv.?
- Vantar að draga betur fram kosti þess að halda krónunni.
- Vantar meira um hættuna á langtíma atvinnuleysi og úttekt á atvinnuleysi innan og utan ESB.
- Vantar meira um upptöku annarra gjaldmiðla í heiminum.
- Vantar meiri upplýsingar um áhrif aðildar ESB á fríverslunarsamninga Íslands við þriðja ríki. Einnig vantar upplýsingar um tollamál tengdu þessu. Spurning hvort utanríkisnefndin fjalli um þetta?
- Vantar að greina hvernig ástandið er í ESB í dag - hvað er að ganga vel og hvað þarf að bæta?
- Vantar fleirri gögn um hvaða áhrif þetta mun hafa á landbúnaðinn og sjávarútveginn.
Vantar einhverjar upplýsingar sem mikilvægt er að afla til að meta kosti og galla þessara leiða? Ef svo er; hvaða upplýsingar vantar?
- Hverjar eru framtíðarhorfur ESB og hver er staðan í dag? Hagvöxtur, atvinnuleysi osfrv. -> þá vitum við betur hvað við værum hugsanlega að fara inn í.
- Hversu samhverfar eru hagsveiflur hinna mismunandi landa/efnahagssambanda?
Þarf að aðskilja betur umræðuna um gjaldmiðla og aðild að ESB. Fleirri en einn gjaldmiðill kemur til greina sbr. hér að ofan.
- Vantar umfjöllun um skattaumhverfið - Lissabon samkomulagið.
- Hversu mikið er sjávarútvegurinn í dag að flytja út óunnið? Fiskvinnsla í dag án útgerðar á enga möguleika. Tengist alltaf útgerðarfyrirtækjum.
- Hvert er hlutverk seðlabanka Evrópu?
- Sjá einnig punkta undir sp. 1
Teljið þið raunhæft að Ísland setji sér samningsmarkmið ef farið er í viðræður um aðild að ESB? Ef svo er hver ættu þau að vera?
- Fyrst og fremst hagsmunir sjávarútvegsins.
- Halda áfram landbúnaði í landinu: a) enginn innflutningur á lifandi dýrum, b) verja störf í kjötiðnaði, c) viljum ekki óheftan innflutning.
- Við úthlutun á kvótanum sjálfum - ráðum því alfarið.
12 mílur? Þarf að fara alla leið þ.e. enginn inn fyrir 200 mílur?
- Löndun í heimahöfn?
- Þjóðaratkvæðagreiðslur yrðu nýttar í auku mæli ef við göngum í ESB.
- Verðum að muna að það eru líka tækifæri fyrir landbúnaðar og sjávarútveg eins og frekari vinnsla á hráefni hér heima sem getur skapað fleirri störf og auknar tekjur fyrir þjóðarbúið - höfum hráefnið, tæknina (Marel) og mannskapinn.
Telur hópurinn æskilegt að Sjálfstæðisflokkurinn hafi forgöngu um annað hvort (1) einhliða upptöku annars gjaldmiðils eða (2) inngöngu í Evrópusambandið og upptöku Evru?
Eigum að vera frjáls og fullvalda - gera tvíhliða samninga við önnur ríki að eigin vali.
- ESB og Evra gefur okkur ramma til að ýta undir stöðugleika fyrir fyrirtæki. Meiri þátttaka en í EES. Tvöföld áhætta að vera með aðra mynt.
- Megum ekki raunverulega missa forræði yfir auðlindum.
- Best að taka einhliða upp annan gjaldmiðil og ná stöðuleika utan ESB.
- Stöðugt verðlag.
- Þarf að skoða betur þá bresti sem eru í Evrópusambandinu í dag.
- Aukinn skriffinnska.
Fleira var ekki rætt. Fundi var slitið kl. 18.40
Fundargerð ritaði Páll Heimisson og Guðrún Ragnarsdóttir