ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAATVINNADRÖG

2. drög

þriðjudagur, 6. janúar 2009

Málefnahópur um atvinnuvegi fór þá leið að hefja starfið með því að óska eftir afstöðu atvinnugreina og hagsmunasamtaka til gjaldmiðilsmála og Evrópusambandsins. Óskað var eftir því að þessir aðilar fylltu út eyðublað (spurningalisti 1) þar sem spurt var um hvaða kostir og gallar væru við annars vegar einhliða upptöku annars gjaldmiðils og hins vegar inngöngu í ESB og upptöku Evru. Stjórnendur og ráðgjafi hópsins Guðrún Ragnarsdóttir, drógu saman helstu niðurstöður þessara aðila og flest þeirra höfðu mótaða afstöðu til málsins.


Eftirfarandi samtök skiluðu afstöðu: Samtök verslunar og þjónustu, Samtök ferðaþjónustu, Samtök iðnaðarins (Samtök sprotafyrirtækja), Samorka, Samtök atvinnulífsins, Nýsköpunarsjóður atvinnulífins, Félag íslenskra stórkaupmanna, Landsamtök íslenskra útvegsmanna (Samtök fiskvinnslustöðva), Bændasamtök Íslands, Viðskiptaráð og Samtökum fjármálafyrirtækja. Flest öll samtökin lýsa jákvæðri afstöðu gagnvart aðild Íslands að Evrópusambandinu og upptöku Evru. Að sama skapi lýsa þessir aðilar efasemdum um að einhliða upptaka Evru þjóni hagsmunum þeirra félaga nægilega til að sú leið sér heppileg. LÍÚ og SF greina ítarlega frá sinni afstöðu gegn aðild ESB og er hún að finna hér. Samband íslenskra sveitarfélaga, Bændasamtökin, ASÍ og BSRB lýsa kostum og göllum ólikra leiða. Samtökum atvinnurekenda í raf- og tölvuiðnaði og Samtökum lífeyrissjóða hafa ekki fjallað sérstaklega um þessi mál innan sinna stjórna og munu því ekki senda svör við spurningum nefndarinnar.


Helstu niðurstöður eru að finna í PowerPoint skjali, sem má nálgast hér.


Málefnahópurinn hélt fyrsta fund sinn í Valhöll miðvikudaginn 17. desember. Hann var vel sóttur og umræðan mjög góð (sjá nánar fundargerð). Í framhaldi var ákveðið að senda út viðbótar spurningalista (spurningalisti 2) til hagsmunaaðila þar sem óskað var eftir skýrri afstöðu til ákveðinna valkosta. Af þeim svörum sem bárust voru flestir á því að upptaka Evru með aðild að ESB væri besti valkosturinn. Samantekt á svörum hagsmunaaðila er að finna í í PowerPoint skjali, sem má nálgast hér.


Á næstu dögum verður boðað til frekari umræðu um hagsmuni atvinnuveganna og verða þeir fundir auglýstir á heimasíðunni.

 

Athugasemdir

Haraldur Baldursson
Reykjavík
14/01/2009 - Kl. 11:48

Miðað við vilja hinna ýmsu samtaka atvinnulífsins til inngöngu í ESB, væntanlega til að njóta aukins aðgangs að mörkuðum og meira jafnræðis við fyrirtæki innan ESB. Er þá ekki þarft og væri ekki rétt að skoða þá alla fleti þess máls, svo sem eins og rétt launþega. Í löndum eins og Frakklandi og Þýskalandi er réttur launþega all verulega hærri en þeirra íslensku. Þar eru starfsmenn með áratuga starfsferill ekki reknir með 3.mánaða uppsagnarfresti eins og hér. Réttur þeirra er miklu hærri og fyritæki hafa ekki sama frelsi og hér. Það er ekki í boði að velja bara bestu konfektbitana.
Ég held reyndar að þessi sveigjanleiki sem íslensk fyrirtæki njóta í flestum tilfellum jákvæður. Ég vill ekki sjá "óuppsegjanleg" réttindi franskra embættismanna ráða ríkjum. Íslenski vinnumarkaðurinn hefur verið mjög sveigjanlegur og þarf að vera það áfram. Með því að forðast þennan saumaklúbb-skrifræðis og treysta héðan í frá sem hingað til á eigin dug og úrræði og nýtast áfram við ófullkomið en sveignanlegan atvinnumarkað Íslands náum við mun betri árangri.
Ef jafnræðis er leitað við ESB fyrirtæki og ef ESB yrði ofan á sem valkostur skal það koma fram í báðum vogarskálunum. Ef fyrir okkur skal liggja að verða ÞEGNAR í Evrópu (sem ég vona að góður Guð forði okkur frá) skal það þá gert með sama jafnvægi og rétti á atvinnumarkaðinum og önnur lönd búa við.

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband

Sjónarmið aðildarfélaga og einstaklinga
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700