Málefnahópi um atvinnuvegina er ætlað að fjalla um áhrif aðildar að Evrópusambandinu á helstu atvinnuvegi á Íslandi. Þar ber fyrst að telja áhrif á sjávarútveg og landbúnað. Umfjöllunin mun m.a. taka til áhrifa á samkeppni, erlendra fjárfestingu og til hugsanlegra breytinga á ríkisaðstoð. Einnig verður fjallað um fjármálastarfsemi, innlendan iðnað, ferðaþjónustu, stóriðju og aðrar atvinnugreinar.
Þessum hópi er ennfremur ætlað að fjalla um áhrif sameiginlegrar viðskiptastefnu Evrópusambandsins á íslenska atvinnuvegi og hvaða hugsanlegu nýju atvinnugreinar gætu sprottið upp við aðild.
Hópnum er stýrt af Ásdísi Höllu Bragadóttur og Finni Oddssyni.
Málefnahópi um atvinnuvegina var ætlað að fjalla um áhrif aðildar að Evrópusambandinu á helstu atvinnuvegi á Íslandi. Farin var sú leið að kalla eftir viðbrögðum helstu hagsmunasamtöka (f.skj. 1) sem mörg hver hafa lagt mikla vinnu í að greina kosti og galla þess að Ísland gangi í ESB. Afstaða þeirra til gjaldmiðilsmála var einnig könnuð. Haldinn var opinn fundur um atvinnuvegina og ESB auk þess sem það bárust athugasemdir og álitaefni frá ýmsum aðilum.