ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAEVRÓPUNEFNDFRÉTTIR

Fundarferð Evrópunefndar um landið lokið

þriðjudagur, 20. janúar 2009

Formenn Evrópunefndar, þeir Kristján Þór Júlíusson og Árni Sigfússon, hafa undanfarnar tvær vikur ferðast um land allt og kynnt starf Evrópunefndar. Alls hafa þeir haldið um 30 fundi og lauk fundarferðinni um helgina. Haldinn var fjölmennur fundur í Valhöll fyrir sjálfstæðismenn í Reykjavík þar sem fjölmargir gestir sóttu fundinn en auk Kristjáns Þórs og Árna sat Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, fundinn. Alls hafa um 1500 manns sótt fundi nefndarinnar síðustu daga.

 

Athugasemdir

Loftur Altice Þorsteinsson
Reykjavík
20/01/2009 - Kl. 15:59

Þakkir Kristján og Árni fyrir ágætan fund.

Það bezta sem Sjálfstæðisflokkurinn getur lagt til málanna í núverandi stöðu, er að samþykkja ályktun um upptöku sterks gjaldmiðils, sem hefur bakstuðning af US Dollar og gefinn verður út af Myntráði. Ef þetta verður ekki gert, hefur flokkurinn brugðist þjóðinni, hvað efnahagsmálin varðar. Vegna þessa brýna verkefnis landsfundar, hef ég dregið upp eftirfarandi drög að ályktun um gjaldmiðilsmálin:
<><><><><><><><><><><><><><><><><><><>
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins ályktar, að efnahagslegur stöðugleiki sé mikilvægasta viðfangsefni efnahagsstjórnunar landsins. Til að koma á stöðugleika við núverandi aðstæður er brýnast að hindra gengisflökt gjaldmiðilsins. Taka verður upp sterkan Íslendskan gjaldmiðil, sem hefur bakstuðning sterks alþjóðlegs gjaldmiðils.

Landsfundurinn telur, að vænlegasti kostur þjóðarinnar sé Íslendskur Dalur, sem nýtur bakstuðnings í varasjóði með Bandarískan Dollar sem stoðmynt. Jafnframt lýsir landsfundurinn yfir stuðningi við stofnun Myntráðs Íslands, sem hefur það verkefni eitt, að gefa út og viðhalda hinum nýja gjaldmiðili, auk þess að ávaxta varasjóðinn í US Dollurum, sem á hverjum tíma verður að verðmæti rúmlega 100% útgefinnar myntar.

Landsfundurinn telur æskilegt, að skiptihlutfall Íslendska Dalsins (ISD) og Bandarísks Dollars (USD) verði 1 ISD = 1 USD, til að auðvelda viðskipti innanlands með báða gjaldmiðlana. Jafnframt verði Seðlabanki Íslands lagður niður, á hæfilegu tímabili og Íslendska Krónan tekin úr umferð. Skiptigengi Krónunnar gagnvart Íslendska Dalnum verði ákveðið af stjórnvöldum, í samráði við viðurkennda erlenda sérfræðinga.
<><><><><><><><><><><><><><><><><><><><>
Þeir sem vilja koma á framfæri tillögum um breytingar á þessum drögum að ályktun, geta send mér hugmyndir sínar á: hlutverk@simnet.is

Viðar Guðjohnsen eldri
Reykjavík
21/01/2009 - Kl. 10:53

Ég spyr aftur, ætla sömu aðilar sem sáu ekki galla EES samningsins með fjrálst flæði peninga og frjálst flæði ódýrra verkamanna að hafa vit fyrir þjóðinni með ESB.

Ætla sömu aðilar og sáu ekkert athugunarvert við að stuðla að eða selja orkulindir þjóðarinn í hendur fjárglæframanna og útlendinga. Þá vitna ég í REI málið og Hitaveitu Suðurnesja.

Ætla sömu aðilar sem voru blindaðir í bankablekkingunni að segja að þeir hafi þá víðsýni sem þarf til að greina hvað gerist í ESB.

Ætla sömu aðilar og sáu ekki að fjölmiðlar voru og eru komnir á mjög vafasama
einhliða braut að hafa vit fyrir þjóðinni í ESB.

Ætla sömu aðilar og sjá ekkert athugunarvert við núverandi fiskveiðistjórn og veðsettningargamblið þar að hafa vit fyrir þjóðinni.

Ætla sömu aðilar og blóðmjólkuðu krónuna að heimta annan gjaldmiðil.

Verðum við ekki að skoða okkar lýðræðislegu uppbyggingu og innviði þjóðfélagsins áður en hlaupið er í ESB.

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband

Sjónarmið aðildarfélaga og einstaklinga
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700