ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAEVRÓPUNEFNDFRÉTTIR

Fundarherferð Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins

miðvikudagur, 7. janúar 2009

Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins heldur í fundarherferð dagana 8. - 17. janúar. Haldnir verða 28 opnir fundir víðsvegar um landið þar sem Evrópumálin verða rædd.

Á fundunum munu Kristján Þór Júlíusson, formaður nefndarinnar, og Árni Sigfússon, varaformaður, kynna starf Evrópunefndar og leita eftir sjónarmiðum fólks um land allt.

Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins mun starfa fram að landsfundi flokksins 29. janúar sem fram fer í Reykjavík og skoða stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu, ríkjum Evrópu og valkostum Íslands í alþjóðasamstarfinu.

Nefndin skilar af sér skýrslu til landsfundar og á grundvelli hennar mun landsfundur flokksins meta hvort framtíð Íslands sé betur borgið innan Evrópusambandsins en utan þess.

Allar nánari upplýsingar um fundarherferðina má finna hér á vefsíðunni.


Fundir Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins um land allt:

8. janúar

Mosfellsbær | Félagsheimili sjálfstæðismanna við Háholt kl. 12:00
Akranes | Skrúði kl. 17:30
Borgarnes | Menntaskólanum í Borgarnesi kl. 20:30
Sandgerði | Samkomuhúsinu kl. 17:30
Garðabær | Félagsheimili sjálfstæðismanna, Garðatorgi 17 kl. 20:00

9. janúar

Blönduós | Félagsheimili sjálfstæðismanna kl. 12:00
Skagafjörður |Félagsheimilinu Ljósheimum kl. 17:00

10. janúar

Ísafjörður | Hótel Ísafirði kl. 12:00

11. janúar

Stykkishólmur | Kaffihúsinu Narfeyrarstofu kl. 12:00
Vesturbyggð | Félagsheimilinu á Patreksfirði kl. 20:00
Grindavík | Handverkshúsinu Sjólist kl. 13:00
Hafnarfjörður | Félagsheimili sjálfstæðismanna, Norðurbakka 1a kl. 17:00
Kópavogur | Félagsheimili sjálfstæðismanna, Hlíðarsmára 19 kl. 20:00

12. janúar

Vík í Mýrdal | Ströndinni , Víkurskála kl. 12:00
Hella | Árhúsum kl. 17:30
Selfoss | Félagsheimili sjálfstæðismanna, Austurvegi 32 kl. 20:00

13. janúar

Ólafsfjörður | Félagsheimilinu Tjarnarborg kl. 12:00
Seltjarnarnes | Félagsheimili sjálfstæðismanna, Austurströnd 3 kl. 17:00
Reykjanesbær | Félagsheimili sjálfstæðismanna, Njarðvík kl. 20:00

14. janúar

Þorlákshöfn | Ráðhúskaffi kl. 12:00
Vestmannaeyjar | Félagsheimili sjálfstæðismanna, Ásgarði kl. 20:00

15. janúar

Húsavík | Veitingastaðnum Sölku kl. 12:00
Akureyri | Kaupangi við Mýrarveg kl. 20:00

16. janúar

Hornafjörður | Kaffi Horninu kl. 12:00
Fjarðarbyggð | Hótel Capitano á Neskaupsstað kl. 12:00
Fjarðarbyggð | Fjarðahótel á Reyðarfirði kl. 17:00
Fljótsdalshérað | Hótel Héraði á Egilsstöðum kl. 20:00

17. janúar

Reykjavík
| Valhöll, Háaleitisbraut 1 kl. 12:00

 

 

Athugasemdir

Viðar Guðjohnsen eldri
Reykjavík
08/01/2009 - Kl. 00:51

Ég set stóra spurningu við að þessir tveir glæsilegu menn gæti hlutleysis í þeirri fundarherferð.

Mér hefur fundist þeir fyrirfram hafa of sterkar einhliða skoðanir í innlimun Íslands í Evruland.
.

Borghildur Maack
Reykjavík
08/01/2009 - Kl. 09:25

Ég hef ekki trú á því - Viðar - " að þessir tveir glæsilegu menn " láti kenna sig við
óvönduð vinnubrögð.
Því orð fer og flýgur !
En til að eyða þínum efasemdum og jafnvel annara og til að gæta fyllsta jafnræðis
væri vel til fundið að par kvenna með andstæðar skoðanir við þá Árna og Kristján Þór - yrðu með í för - þá er kynjakodanum líka haldið ril haga.

Viðar Guðjohnsen eldri
Reykjavík
08/01/2009 - Kl. 09:47

Borghildur Maack

Sammála

Björgvin Þóroddsson
Þórshöfn
08/01/2009 - Kl. 18:26

Ójá.sæl og blessuð Borghildur, það á ekki að senda svona glæsilega menn kvennmannslausa út á land. það getur bara verið stórhættulegt.
og svo er örugglega til fullt af stórglæsilegum konum sem vilja vera með þeim.

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband

Sjónarmið aðildarfélaga og einstaklinga
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700