
Á vefnum eru nú orðin aðgengileg myndbönd frá opnum fundum starfshópa Evrópanefndarinnar sem haldnir voru dagana fyrir jól. Á þessum fundum, sem voru alls sjö talsins, kynntu formenn hópanna þau sjónarmið sem fram hafa komið og starf nefndarinnar. Líflegar umræður sköpuðust á þessum fundum um kosti og galla Evrópusambandsins. Unnt er að nálgast myndböndin með því að ýta á "Myndbönd" á haus síðunnar, eða með því að smella hér.