ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAEVRÓPUNEFNDFRÉTTIR

Öflugt starf framundan

mánudagur, 29. desember 2008

Starf Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins hefur farið vel af stað undanfarnar vikur. Lífleg skoðanaskipti hafa myndast hér á vefnum sem og á þeim fjölmörgu opnu fundum sem nefndin hefur staðið fyrir. Um mánuður er þangað til landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður settur, fimmtudaginn 29. janúar nk. Á vegum Evrópunefndar flokksins verður m.a. ráðist í fundarherferð um landið þar sem leitað verður eftir sjónarmiðum flokksmanna víðsvegar um landið og verður hún betur auglýst hér á vefnum þegar nær dregur.

 

Athugasemdir

Hjörtur J. Guðmundsson
Reykjavík
29/12/2008 - Kl. 22:04

Mér skilst að til standi að birta myndbandsupptökur frá almennum fundum Evrópunefndarinnar og undirnefnda hennar hér á heimasíðunni fyrir þá sem ekki sáu sér fært að mæta á þá, þá ekki sízt félaga okkar sem búa úti á landi. Hvenær má búast við því að af því verði?

Árni Helgason
Reykjavík
30/12/2008 - Kl. 15:13

Sæll Hjörtur.

Það náðist ekki að ganga frá því að setja myndböndin inn á vefinn fyrir jól og nú er verið að ganga frá þeim. Þau ættu að koma inn mjög fljótlega, í síðasta lagi fyrstu dagana á nýju ári.

Hjörtur J. Guðmundsson
Reykjavík
30/12/2008 - Kl. 21:11

Sæll Árni,

Kærar þakkir fyrir svarið. Svo er mál með vexti að ég hef enn ekki komizt á neinn fund hjá Evrópunefndinni, aðallega vegna flensu í aðdraganda jólanna. Hins vegar hafði ég frétt af því að fundirnir yrðu teknir upp og birtir hér á síðunni og vildi eðlilega gjarnan geta séð þá fundi sem ég hef ekki komizt á svo ég tali ekki um þá fundi sem eiga eftir að fara fram og ég kann að komast ekki á. Ég hef líka heyrt í sjálfstæðismönnum úti á landi sem vilja gjarnan geta fylgst jafnóðum með og fundirnir eru haldnir. Þannig að það er gott að þetta sé að fara að gerast.

Beztu kveðjur,
Hjörtur

Loftur Altice Þorsteinsson
Reykjavík
31/12/2008 - Kl. 11:26

Árni Helgason.

Eru það bara einhverjir útvaldir sem fá að birta greinar á vefnum ?
Hvar eru reglur um aðsendar greinar, fyrst takmarkanir eru í gildi ?

Árni Helgason
Reykjavík
31/12/2008 - Kl. 15:50

Loftur:
Það er öllum frjálst að setja inn athugasemdir á síðuna og tjá sig þannig.

Því til viðbótar höfum við ákveðið að bjóða upp á nýjan lið á síðunni, sem heitir "Aðsendar greinar" og er að finna á forsíðunni. Þar geta allir þeir sem vilja senda inn sínar greinar komið þeim á framfæri.

Ákveðið var að setja upp þennan lið á vefnum til þess að koma til móts við þá sem vilja birta greinar, en eitthvað hefur borist af slíkum óskum. Það er sjálfsagt að mæta slíkum beiðnum, því það getur vel verið að ekki henti að koma þeim skoðunum sem menn vilja koma á framfæri fram sem athugasemd og þá er þessi liður í boði.

Hjörtur J. Guðmundsson
Reykjavík
01/01/2009 - Kl. 14:09

Árni:
Talandi um aðsendar greinar. Var aðsend grein Sölva R. Sólbergssonar einhvern tímann birt á forsíðu heimasíðunnar? Ég tel mig fylgjast mjög grannt með þessari síðu en minnist þess þó ekki að hafa séð hana þar. Og raunar er ég að sjá hana í fyrsta skiptið núna en hún er sögð hafa birzt 20. desember sl.?

Hjörtur J. Guðmundsson
Reykjavík
01/01/2009 - Kl. 14:12

Og því má bæta við að ég á þarna við dálkinn "Pistlar" og grunar að Loftur hafi sömuleiðis verið að spyrja um hann. Er hann bara fyrir suma eða alla? Eða er kannski einhver stéttskipting í gangi hvað það varðar? ;)

Eiríkur Tómasson
Grindavík
01/01/2009 - Kl. 16:07

Til umsjónarmanns vefsins,

ég skrifaði athsemd í dag við pistil Þórlinds og Teits, og sé að hún kemur ekki fram, er þetta bilað, eða er athsemdum ekki ætlað að birtast?

Árni Helgason
Reykjavík
01/01/2009 - Kl. 17:04

Hjörtur: Tímasetning á grein Sölva var e-a hluta vegna röng, sem hefur verið leiðrétt núna. Hún fór inn á vefinn á gamlársdag, en ekki 20. desember.

Eiríkur: Að sjálfsögðu er athugasemdum ætlað að birtast. Hér hafa orðið einhver mistök, annað hvort við að setja inn kommentið eða þá að vefurinn er í ólagi. Vinsamlega reyndu að setja athugasemdina aftur inn og láttu mig vita ef það gengur ekki.

Árni Helgason
Reykjavík
01/01/2009 - Kl. 17:17

Smá leiðrétting, grein Sölva birtist á vefnum 30. desember, en ekki á gamlársdag. Sú birtingardagsetning er nú á greininni. Vona að þetta trufli menn ekki um of - grein Sölva stendur fyrir sínu!

Árni Helgason
Reykjavík
01/01/2009 - Kl. 17:26

Enn eitt: Varðandi spurningu Hjartar J. um aðsendar greinar og pistla, þá er þetta einfaldlega hugsað þannig, eins og ég lýsti í fyrri athugasemd við þessa frétt, að allir geta birt greinar sínar undir flokknum "Aðsendar greinar" og það er hugsað sem aukin þjónusta við þá sem vilja koma skoðunum sínum á framfæri á síðunni, þannig að þeir þurfi ekki að styðjast eingöngu við commentakerfið.

Hjörtur J. Guðmundsson
Reykjavík
01/01/2009 - Kl. 21:13

Kærar þakkir Árni fyrir að bregðast skjótt við þegar fyrirspurnum er beint til þín, það er svo sannarlega til fyrirmyndar! :)

En mig langar enn að vita fyrir forvitnis sakir hvernig fyrirkomulaginu er háttað vegna dálksins "Pistlar" (sem óneitanlega fær mun veglegri sess á heimasíðunni). Er hann fyrir einhverja útvalda eða geta hverjir sem er sent greinar í báða dálkana? Ef svo er, hver er þá tilgangurinn með tveimur dálkum?

Hjörtur J. Guðmundsson
Reykjavík
03/01/2009 - Kl. 20:02

Svo ég endurtaki spurningu mína fyrir forvitnissakir þá væri áhugavert að vita hvaða reglur gilda um dálkinn "Pistlar", hvort sá dálkur (sem óneitanlega er settur skör hærra á heimasíðunni en dálkurinn "Aðsendar greinar") er fyrir einhverja útvalda eða hvort hver sem er getur fengið birtar greinar þar?

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband

Sjónarmið aðildarfélaga og einstaklinga
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700