Auðlindahópur Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins stendur fyrir opnum fundi í hádeginu á mánudaginn 22. desember frá klukkan 12-14 í Valhöll. Þar verða haldin þrjú áhugaverð erindi; Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, ræðir um framtíðarstöðu Íslands og samstarf við ESB ef Ísland gengur ekki í sambandið, Högni Kristjánsson, skrifstofustjóri Evrópuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, fjallar um Lissabon-sáttmálann og Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, fer yfir sjávarútvegsmál og ESB.
Ég vona að það verði áætlaður nægur tími fyrir spurningar. þetta hefur verið frekar knappur tími til spurninga undanfarna fundi.
Viðar þessi skrifaði raunar spurningu sína EFTIR fundinn – eins og ég!
En eftir því sem mér skilst, er veruleg hætta á því, að samráðið við grasrótina og hina almennu félagsmenn flokksins verði bara í skötulíki – sér í lagi ef niðurstaðan er ákveðin fyrir fram, eins og sumir óttast. Maður þekkir þetta bæði á starfssviði Alþingis og t.d. Þjóðkirkjunnar – um það síðarnefnda má nefna sem dæmi, að til stóð að hafa mikið samráð um eitt alvarlegt siðferðis- og helgisiðamál við söfnuðina og félög innan vébanda Þjóðkirkjunnar, áður en Prestastefna og Kirkjuþing tækju að ákveða eitthvað í því efni, en svo var þagað um allt það meinta samráð og ekkert birt um niðurstöðurnar, eflaust af því að þær hafa ekki verið hentugar rétthugsunarmönnum, og höfðu þó verið kostaðir til starfsmenn að flytja hið nýja fagnaðarerindi um landið. – Þetta munu vera algeng vinnubrögð í pólitík, en mega ekki eiga sér stað hér, enda liggja sjálf FULLVELDISRÉTTINDI ÞJÓÐARINNAR við.
Nú er að sjá í Mbl. í dag, bls. 4, og á annarri vefsíðu hér, að Styrmir Gunnarsson telur, að varaformaður flokksins hafi þegar ákveðið og tilkynnt sína afstöðu fyrir fram. Hið "víðtæka samráð" virðist þá ekki skipta hana miklu máli.
Gleymum því ekki, sjálfstæðismenn, að þann 20. nóvember birti Morgunblaðið ýtarlega skoðanakönnun um EBé-aðild, sem Capacent Gallup gerði fyrir Samtök iðnaðarins, og þar kom fram, að einungis "24% sjálfstæðismanna eru hlynnt aðild, en 54% andvíg"! Andstæðingar aðildar eru þannig 2,25 sinnum fleiri en fylgjendur hennar í Sjálfstæðisflokknum.
Ég held, að Jón Valur Jensson fitji hér upp á þörfu atriði. Grunsemdir hafa vaknað um tilgang þessa starfs, eins og Styrmir Gunnarsson hefur einnig bent á.
Hvernig stendur til dæmis á því að einungis útvaldir einstaklingar fá að setja inn skjöl á Netsíðuna ?
Hvers vegna er engin alvarleg umræða um nafn nefndarinnar og viðfangsefni ?
Hvað segja menn um tillögu mína um, að hún verði nefnd Fullveldisnefnd Sjálfstæðisflokks ?
Má ekki ræða um niðurlægingu Alþingis á þessum vettvangi og hvernig það lýtur í gras fyrir ESB ?
Umfjöllun: http://altice.blog.is/blog/altice/entry/742547/
Ætla menn ekkert að ræða EES samninginn og hvað af honum má læra ?
Skiptir engu máli sú reynsla sem við höfum af samskiptum við ESB og sem birtist meðal annars í núgildandi samstarfi um EES ?
Atriði sem eru sláandi eftir fundinn eru ma.
Evrópudómstóll á að dæma í framtíðinni í ágreiningsmálum milli Íslands og evrulands ef til EBS samrunna yrði.
Það sér hver að hagsmunir stærri aðilans yrði alltaf ofan á.
Auðlindir Íslandinga eru hlutfallslega gríðalega miklir miðað við höfðatölu. Gaman væri að fá eitthvað reiknilíkan af því.
Hvað gæti verið okkur auðlind í framtíðinni og ekki fyrirséð í dag?
Smá upptalning á auðlindum í dag:
Fiskveiðar
Landbúnaður
Vatnsorka
Vatn
Hreint loft
Heitt vatn og gufuorka
Olía er ennþá spurning
Hreinn jarðvegur, gróðurmold o.s.f.
Mikið landsvæði
Mikið hafsvæði
Dulinn gjaldeyri sem fjárglæframenn náðu í gegnum bankakerfið en óvitað hvar eru?
Munum hvernig fór fyrir Nýfundnalandi, þeir töpuðu sínum auðlindum við samruna við Canada.
Hluti af óánægju fólks er að það finnst það hafa glatað fiskveiðiauðlindum sínum til sérhagsmunahóps innanlands og þar með ginkeyptara fyrir ESB aðild.
það stingur líka hvernig á lúmskan hátt átti að selja auðlindir landsmanna í sambandi við Hitaveitu Suðurnesja. Sá gjörningur er enn í gangi.
Flýtum okkur hægt.