ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAEVRÓPUNEFNDDRÖG

4. fundur

fimmtudagur, 18. desember 2008

Fundur hjá Evrópunefnd


Valhöll, fimmtudaginn 18. desember kl. 16.00

Mættir voru: Árni Sigfússon, varaformaður Evrópunefndar, Halldór Benjamín Þórbergsson, Brynjólfur Ægir Sævarsson, Árni Helgason, Stefanía Katrín Karlsdóttir, Sigríður Oddsdóttir, Ásdís Halla Bragadóttir, Einar Benediktsson, Jón Hákon Magnússon, Ársæll Valfells, Guðrún Ragnarsdóttir, Ásta Þórarinsdóttir, Katrín H. Hallgrímsdóttir, Rúna Malmquist, Hafliði Pétur Gíslason, Elínbjörg Magnúsdóttir, Þórdís Pétursdóttir, Friðrik Sophusson, Jóhann Heiðar Jóhansson, Drífa Hjartardóttir, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Skapti Örn Ólafsson, Guðmundur Einarsson, Páll Heimisson.


Árni Sigfússon opnaði fundinn og gerði grein fyrir hvað hefði gerst í nefndinni síðan síðasti fundur var haldinn. Hann fór yfir opna fundi sem verkhóparnir hafa haldið og tók fram að sérfræðingar hefðu aðstoðað verkhópana á fjölmörgum sviðum.
Hver verkhópur gerði þvínæst grein fyrir sinni vinnu fram til þessa:

Verkhópur um lýðræði


Framundan er stór opinn fundur í janúar þar sem ætlunin era ð fá sérfræðinga til að tala.



Verkhópur um vinnumarkað

Hópurinn hefur tekið viðtöl við fjölmarga aðila, sérfræðinga og formenn málefnanefnda Sjálfstæðisflokksins. Miðvikudaginn 17. desember var haldinn opinn fundur í Valhöll. Drög 2 hafa verið birt á vef Evrópunefndar þar sem umræðan er dýpkuð og er nú vænst að fólk taki við sér og fari í auknum mæli að nýta vefsíðu Evrópunefndarinnar til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Verkhópur um gjaldmiðlamál


Verkhópurinn hefur leitað til fjölmargra sérfræðinga við sína vinnu. Gott efni er komið inn á vefinn, þar sem fjallað er um kosti og galla krónunnar ásamt kostum þess að ganga í ESB og öðrum möguleikum sem eru fyrir hendi. Verkhópurinn leitaði til sérfræðings hjá Seðlabankanum til að skrifa persónulega ritgerð um hvað hafi farið úrskeiðis í peningamálastefnunni síðastliðin 7 ár. Er sú ritgerð birt á vefnum. Opinn fundur var haldinn í hádeginu í dag sem var velsóttur og dróst fundurinn eina klukkustund yfir áætluð fundarlok þar sem vildu ræða málin og spyrja spurninga.

Verkhópur um utanríkis- og öryggismál


Verkhópurinn hélt fund með utanríkismálanefnd Sjálfstæðisflokksins síðastliðinn þriðjudag. Hópurinn hélt svo opinn fund miðvikudaginn 17. desember sem var vel sóttur. Þar voru heitar umræður um utanríkis og öryggismál.

Verkhópur um stjórnskipan Íslands


Síðan síðasti fundur var haldinn að þá hefur verkhópurinn haldið 2 fundi með réttarfars- og stjórnskipunarnefnd Sjálfstæðisflokksins. Einnig hefur verkhópurinn haldið einn opinn fund með réttarfars- og stjórnskipunarnefnd í Valhöll. Þar bárust margar góðar spurningar sem nú er verið að vinna nánar að og munu birtast svör við í næstu drögum frá hópnum. Verkhópurinn hefur leitað til sérfræðinga til að vinna úttekt á ýmsum atriðum sem kemur inn á vefinn í byrjun janúar.


Verkhópur um vinnumarkaðsmál


Verkstjórar hópsins gerðu grein fyrir að strax í byrjun hefðu þeir ákveðið að vera frekar verkstjórar en predikarar. Hópurinn hefur leitað til fjölmargra aðila og hagsmunasamtaka og fengið gríðarlega mikið efni og upplýsingar sem þau hafa tekið saman og gert aðgengilegt á vefnum. Verkhópurinn hélt opinn fund í gær þar sem fólki var skipt í 3 vinnuhópa og beðið um að svara spurningum um hvað verkhópurinn ætti að skoða betur og hvað vanti í drögum verkhópsins. Niðurstaða hópastarfsins verður lögð til grundvallar við vinnu að næstu drögum hópsins. Verkhópurinn áætlar að hafa annan opinn fund í byrjun janúar.

Verkhópur um auðlindamál


Fundur var haldinn í Skálholti í gær þar sem Friðrik Sophusson, formaður verkhópsins fór yfir ýmis mál. Bjarni Már, varaformaður hópsins var með svipaðan fund á Akureyri á fimmtudag. Ennfremur hélt verkhópurinn opinn fund í Valhöll síðastliðinn mánudag og báru umræður á þeim fundi þess merki að menn vildu skýrari sýn á málið. Tóku verkstjórar hópsins því þá ákvörðun að halda annan opinn fund í Valhöll næstkomandi mánudag þar sem Björn Bjarnason mun fjalla um stöðu Íslands utan ESB, Martin Eyjólfsson mun fjalla um Lissabonsáttmálann og þær breytingar sem hann mun hafa í för með sér á Evrópusambandinu og loks Friðrik J. Arngrímsson mun fjalla um helstu hindranir fyrir því að Ísland sæki um aðild að ESB. Einnig stefnir hópurinn á fund í byrjun nýs árs.

 

Eftir að verkhópar höfðu gert grein fyrir sinni vinnu að þá fjallaði Árni Sigfússon um hvað hafi verið að gerast á vettvangi Flokksins um allt land, en flokksfélög hafa verið mjög öflug að halda fundi og hefur sérstakt hópastarf verið sett á laggirnar til að fjalla sérstaklega um ýmis álitaefni varðandi ESB aðild á vegum fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri.


Einnig kynnti Árni Sigfússon vinnu við gerð svokallaðra sviðsmynda sem eiga að draga upp mismunandi stöður Íslands miðað við mismunandi forsendur. Til að mynda hvernig staðan á Íslandi verður eftir 20 ár verði gengið í Evrópusambandið og svo hvernig staðan væri ef ekki yrði gengið inn. Kynna á sviðsmyndirnar í fyrrihluta janúarmánuðs.

Fleira var ekki rætt. Fundi var slitið kl. 18.00

Fundargerð ritaði Páll Heimisson

 

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband

Sjónarmið aðildarfélaga og einstaklinga
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700