ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAEVRÓPUNEFNDDRÖG

3. fundur

fimmtudagur, 11. desember 2008

Fundargerð

Efni: Þriðji fundur Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins

Haldinn: Í Valhöll miðvikudaginn 11. desember 2008.

Mætt: Friðrik Sophusson, Bjarni Már Magnússon, Ásdís Halla Bragadóttir, Finnur Oddsson, Ragnhildur Helgadóttir, Katrín Helga Hallgrímsdóttir, Jón Hákon Magnússon, Einar Benedikson, Gylfi Zoega, Ársæll Valfells, Sigríður Margrét Oddsdóttir, Katrín Olga Jóhannesdóttir, Árni Helgason, Andri Óttarsson, Kristján Þór Júlíusson, Árni Sigfússon, Páll Heimisson, Skapti Ö. Ólafsson, Þórdís Kristín Pétursdóttir og Kristján Vigfússon. Frá málefnanefndum komu: Erna Gísladóttir, Ólafur Klemensson, Kristín Edwald, Drífa Hjartardóttir, Jóhann Heiðar Jóhannsson, Sólveig Pétursdóttir, Erla Ósk Ásgeirsdóttir.

  1. Kristján Þór fjallaði um fundi sem hann og Árni S hafa átt undanfarna daga með hinum ýmsu aðilum. Hann gerði ennfremur grein fyrir dagskrá morgundagsins þegar formaður flokksins opnar Evrópuumræðuna um land allt. Gert er ráð fyrir fundum víða um land og í framhaldi hefjist málefnavinna.
  2. Fleiri starfsmenn koma nú að vinnu málefnanefnda og voru þeir Páll Heimisson og Skapti Örn Ólafsson kynntir fyrir fundarmönnum. Þeir munu aðstoða formenn og varaformenn við skipulag funda fram að landsfundi. Auk þessa mun Þórdís K. Pétursdóttir vinna með Evrópunefndinni og tryggja tengsl við málefnanefndir flokksins.
  3. Formenn og varaformenn málefnahópa fjölluðu um stöðu mála og hvernig gengið hefði að afla upplýsinga og efna til samráðs við hina ýmsu hagsmunaaðila.
  4. Kristján Vigfússon fjallaði um uppsetningu heimasíðunnar og mikilvægi hennar í upplýsingamiðlun til almennings og flokksmanna. Formenn málefnahópa hafa tíma til miðnættis með að skila inn skýrsludrögum svo hægt sé að setja drögin inn fyrir opnun síðunnar 12. desember.
  5. Næsti fundur boðaður fimmtudaginn 18. desember kl. 16.00, fleira var ekki gert.

 

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband

Sjónarmið aðildarfélaga og einstaklinga
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700