2. fundur
mánudagur, 8. desember 2008
Fundargerð
Efni: Annar fundur Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins
Haldinn: Í Valhöll mánudaginn 8. desember 2008
Mætt: Friðrik Sophusson, Bjarni Már Magnússon, Ásdís Halla Bragadóttir, Finnur Oddsson, Ragnhildur Helgadóttir, Katrín Helga Hallgrímsdóttir, Jón Hákon Magnússon, Einar Benedikson, Gylfi Zoega, Ársæll Valfells, Sigríður Margrét Oddsdóttir, Katrín Olga Jóhannesdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Ásta Þórarinsdóttir, Árni Helgason, Andri Óttarsson, Kristján Þór Júlíusson, Árni Sigfússon og Kristján Vigfússon.
- Kristján Þór fjallaði um fundi sem hann, Kristján V, Árni S, Andri og Árni H, hafa átt með hinum ýmsum aðilum frá fyrsta fundi Evrópunefndarinnar. Fundað hefur verið með Verði og málið kynnt þar einnig með Sjálfstæðisfélaginu á Akranesi, með utanríkismálenefnd Sjálfstæðisflokksins auk fjölda símafunda með ýmsum aðilum.
- Kristján Þór og Árni S gerðu grein fyrir opnun málsins sem verður nk. föstudag með ávarpi formanns flokksins og ávarpi formanns Evrópunefndar. Einnig greint frá því að flokksfélög víða um landið munu hefja sína vinnu í framhaldi af opnun heimasíðunnar. Á heimasíðunni verða fyrstu drög að lokaskýrslu aðgengileg fyrir alla sem að málinu vilja koma.
- Fjallað var um uppsetningu heimasíðunar og hvernig málefnahópar myndu skila efni inn á hana.
- Rætt um skil á fyrstu drögum að stöðuskýrslu og fram kom að flestir hóparnir væru vel á veg komnir og höfðu haft samráð við fjölda manns. Flestir hóparnir munu auglýsa opna fundi í næstu viku.
- Næsti fundur boðaður mánudaginn 11. desember. Fleira var ekki gert.