ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAEVRÓPUNEFNDDRÖG

1. fundur

miðvikudagur, 3. desember 2008

Fundargerð

Efni: Fyrsti fundur Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins

Haldinn: Í Valhöll miðvikudaginn 3. desember 2008

Mætt: Friðrik Sophusson, Bjarni Már Magnússon, Ásdís Halla Bragadóttir, Finnur Oddsson, Ragnhildur Helgadóttir, Katrín Helga Hallgrímsdóttir, Jón Hákon Magnússon, Einar Benedikson, Gylfi Zoega, Ársæll Valfells, Sigríður Margrét Oddsdóttir, Katrín Olga Jóhannesdóttir, Hanna Katrín Friðriksson, Ásta Þórarinsdóttir, Árni Helgason, Andri Óttarsson, Kristján Þór Júlíusson, Árni Sigfússon og Kristján Vigfússon.

  1. Kristján Þþór kynnti tilurð nefndarinnar og bauð formenn og varaformenn málefnahópanna velkomna til starfa. Kristján fór í gegnum stutta kynningu þar sem greint var frá því hvernig nefndin ætlaði að vinna. Sú kynning sem um ræðir verður birt á nýrri heimasíðu fyrir Evrópunefndina 12. desember nk. Árni Sigfússon ræddi mikilvægi þess að formenn og varaformenn tengdu sig við helstu hagsmunaðila, málefnanefndir flokksins og flokksfélögin á landsbyggðinni í vinnu sinni. Samþykkt var að halda opna fundi þar sem almenningur og flokksmenn gætu mætt og rætt við málefnahópanna. Ennfremur fjallað um fundaferð sem formaður og varaformaður nefndarinnar áætla að fara í janúar um landið allt.
  2. Formenn og varaformenn málefnahópa kynntu sig og fjölluðu um hvernig þeir teldu best að vinna og afla gagna.
  3. Fjallað var um uppsetningu heimasíðunnar og mikilvægi hennar í upplýsingamiðlun til almennings og flokksmanna. Gert er ráð fyrir að heimasíðan verði opnuð 12. desember nk.
  4. Rætt um skil á fyrstu drögum að stöðuskýrslu og þau yrðu tilbúin fyrir 12. desember þegar starfinu verður formlega hleypt af stokkunum.
  5. Næsti fundur boðaður mánudaginn 8. desember og fleira ekki gert.

 

 

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband

Sjónarmið aðildarfélaga og einstaklinga
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700