ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAEVRÓPUNEFNDPISTLAR

Átökin þá og nú

föstudagur, 20. mars 2009

Innganga Íslands í efnahagssamstarf í Evrópu hófst við inngönguna í EFTA árið 1970. Á þeim tíma var málið mjög umdeilt og andstæðingar höfðu uppi stóryrði um að innan þessa bandalags yrðu Íslendingar fyrir margvíslegu fári. Sem betur fer sigruðu boðberar nýrra tíma í þeirri glímu, þjóðinni til blessunar.

Sumir áttu erfitt með að gera upp hug sinn og urðu að athlægi fyrir vikið. Framsóknarflokkurinn bjó við það böl að hafa formann sem ekki þorði að taka af skarið.

Í árslok 1969 var aðild Íslands að EFTA samþykkt á Alþingi. Málið hafði lengi verið umdeilt. Það var rætt víða um land og meðal annars hélt Iðnnemasambandið fund í Sigtúni þar sem blaðamennirnir Svavar Gestsson og Styrmir Gunnarsson höfðu framsögu. Þjóðviljinn segir frá því að fundurinn hefði verið líflegur og nokkrir talað eftir að frummælendur luku máli sínu. Meðal annars töluðu þrír framsóknarmenn. Var einn með aðild, annar hlutlaus og sá þriðji á móti. Þess er jafnframt getið að fáa formælendur hafi EFTA-aðildin átt aðra en frummælandann Styrmi Gunnarsson.

Aðildin var engu að síður samþykkt á Alþingi nokkrum vikum síðar með 33 atkvæðum gegn sjö. Framsóknarmenn sátu hjá, en Alþýðubandalagið var að mestu á móti.

Í janúar árið eftir fjallaði Morgunblaðið um forystuvandræði Framsóknarflokksins í þættinum „Af innlendum vettvangi"

Greinin nefndist Ólafur Jóhannesson í pólitískum erfiðleikum.

Ólafur var þá tiltölulega nýlega kjörin formaður Framsóknarflokksins. Greinin á erindi enn þann dag í dag því að sjá má margar hliðstæður í stjórnmálum samtímans við umfjöllunarefnið ekki síst um hlutverk forystumanna að skera á hnúta og „kveða á um, hvaða stefnu flokkurinn eigi að marka."

Greinin er lítið eitt stytt.

„EITT af því, sem einna mesta athygli vakti á Alþingi fyrir jólin var sú augljósa staðreynd, að formaður Framsóknflokksins, Ólafur Jóhannesson, á í umtalsverðum pólitískum erfiðleikum um þessar mundir. Kom þetta glöggt fram í umræðum um aðild Íslands að EFTA og raunar einnig öðrum störfum þingsins síðustu daga fyrir jól.

Það hefur að vísu legið ljóst fyrir um nokkurt skeið, að Ólafi Jóhannessyni hefur a.m.k. ekki enn tekizt að taka forustu Framsóknarflokksins nægilega traustum tökum og vitað er, að innan Framsóknarflokksins gætir verulegra efasemda um, að honum muni nokkru sinni takast það. Um það getur þó enginn sagt og því hyggilegast að spá sem fæstu.

Óhætt er að fullyrða, að formennska stjórnmálaflokks er hvorki eftirsóknarvert né öfundsvert hlutskipti og engan þarf að undra þótt það taki nýjan mann nokkurn tíma að treysta sig í slíkum sessi og ná tökum á starfi sínu.

...

Mótun á stefnu Framsóknarflokksins til aðildar Íslands að EFTA var fyrsta
stóra vandamálið, sem Ólafur Jóhannesson stóð frammi fyrir, eftir að hann tók við forustu Framsóknarflokksins. Í þessu máli átti hann augljóslega við mikinn vanda að etja. Framsóknarflokkurinn var alvarlega klofinn í málinu. Áhrifamikil öfl innan flokksins voru hlynnt aðild að EFTA og voru þeirrar skoðunar, að flokkurinn ætti að styðja málið á Alþingi. Aðrir aðilar innan flokksins voru því hins vegar mjög mótfallnir. Það er á slíkum stundum, sem reynir verulega á forustuhæfileika og styrk flokksleiðtoganna. Að lokum fellur í þeirra hlut að skera á hnútinn og kveða á um, hvaða stefnu flokkurinn eigi að marka og þá reynir einnig á hæfileika þeirra til þess að sannfæra þá, sem andvígir eru þeirri ákvörðun, um að rétt sé stefnt.

Eins og öllum er kunnugt, fór Framsóknarflokkurinn bil beggja í þessu máli. Lýsti sig í grundvallaratriðum hlynntan EFTA-aðild, en taldi málið ekki nægilega vel undirbúið og lagði til frestun. Þegar hún var ekki samþykkt, sat Framsóknarflokkurinn hjá.

Þessi afstaða mæltist mjög illa fyrir meðal almennings og einnig meðal Framsóknarmanna sjálfra. Við bættist svo hin óheppilega já-já-nei-nei ræða flokksformannsins á Alþingi, sem varð til þess að gera hann, flokk hans og afstöðu flokksins til málsins að athlægi um land allt.

Í þessu erfiða máli fyrir Framsóknarflokkinn er augljóst, að forusta Ólafs Jóhannessonar brást. Hann skorti hörku og styrk til þess að fylgja fram stefnu,sem hefði a.m.k. ekki veikt trú manna á Framsóknarflokkinn eins og raun varð á. Óhætt er að fullyrða, að flokkurinn hefði staðið mun betur að vígi, ef hann hefði einfaldlega klofnað í atkvæðagreiðslu á Alþingi um málið.

Eftir að þetta mál var til lykta leitt,virtist sem Ólafi Jóhannessyni skrikaði hvað eftir anna/ð fótur í þingstörfunum. Hann virtist reyna að auka veg sinn í augum flokksmanna sinna með því að sýna hörku í umræðum á Alþingi, sem honum er ekki lagin og átti það sérstaklega við um ýmsar athugasemdir, seim hann gerði síðustu daga fyrir jólaleyfi varðandi vinnubrögð þingsins. Málflutningur hans þá var bersýnilega við það miðaður, að hann fengi sem mestan uppslátt í Tímanum, svo að hinir tryggu flokksmenn gætu séð, að foringi þeirra stæði í stórræðum á Alþingi og léti ekki sitt eftir liggja. En það fer sumum mönnum illa að belgja sig út yfir tilbúinni óánægju og það á við um Ólaf Jóhannesson, sem lengi hefur verið einn málefnalegasti þingmaður stjórnarandstöðunnar í umræðum.

...

Nú skal að vísu varað við því að draga of víðtækar ályktanir af þeim pólitísku erfiðleikum, sem formaður Framsóknarflokksins á í um þessar mundir. Í lífi og starfi stjórnmálamanna skiptast á skin og skúrir og sveiflurnar geta oft verið ótrúlega miklar. Þess eru mörg dæmi, að stjórnmálamenn hafa verið „afskrifaðir" endanlega en komist til stóraukinna áhrifa og valda eftir það.

...

Höfundur greinarinnar er sami Styrmir Gunnarsson og talaði fyrir inngöngu Íslendinga í Fríverslunarsamtök Evrópu við litlar undirtektir á iðnnemafundinum.

En hafði þó sigur þegar upp var staðið.

Benedikt Jóhannesson

 

 

 

Athugasemdir

Jón Valur Jensson
Reykjavík
22/03/2009 - Kl. 17:01

Vonandi gerir höfundur þessarar samantektar sér grein fyrir því, að á EFTA-aðild okkar og innlimun í Evrópubandalagið er REGINMUNUR. Það hefur aldrei komið til tals, að EFTA myndi ógna fullveldisréttindum okkar og yfirráðum yfir fiskimiðunum, ekkert rætt um "nauðsynlegar fórnir" í því efni, eins og ýmsir málsvarar EBé-innlimunar eru farnir að gera núna, með sjávarútveginn í huga.

En hvers vegna er Benedikt alltaf að birta hér pistla? Fær hann sérstakt boð um það? Eða er nóg að biðja, til þess að menn fái birtingu á greinum hér á síðunni?

Gætum þess, að hér verði engin slagsíða gegn hinum dýrmætu, stjórnarskrártryggðu fullveldisréttindum okkar.

Pawel Bartoszek
Reykjavík
22/03/2009 - Kl. 21:33

Höfundur setur núverandi umræður um Evrópusambandið í mikilvægt sögulegt samhengi.

Þátttaka Íslendinga í alþjóðasamtökum hefur alltaf mætt töluverðri og skipulagðri andstöðu, oftast frá svipuðum hópum. Það var deilt um NATO, það var deilt um EFTA, GATT og EES. Það var meira að segja deilt um aðild að Sameinuðu þjóðunum.

Sem betur fer höfum við lengst af borið þá gæfu að velja samstarf við aðrar þjóðir í stað einangrunar. Vonandi að svo verði áfram.

Jón Valur Jensson
Reykjavík
23/03/2009 - Kl. 14:05

Innganga í Evrópubandalagið er EKKI einfaldlega "samstarf við aðrar þjóðir," heldur innlimun í yfirríkjabandalag og jafn-alvarleg og að láta innlimast í Bandaríki Ameríku. Það verður ekki aftur snúið, nema hvað endanleg samþykkt Lissabon-sáttmálans mundi gefa færi á því, en þó í raun með miklum herkjum og nánast óyfirstíganlegum erfiðleikum. Æðsti fullveldisrétturinn, til löggjafar og stjórnar á málum okkar, sem farinn yrði til meginlandsins, kæmi ekki sjálfkrafa aftur. En kannski Pawel Bartoszek kunni ekki að meta þessi réttindi, enda voru það ekki hans forfeður og ættmenn sem börðust fyrir heimt þessa sjálfstæðis og þessara réttinda hér á landi. – Svo er hitt ekki rétt hjá Pawel, að vi séum hér í einhverri "einangrun". Með sjálfstæði okkar ráðum við því líka alfarið sjálf, við hverja við gerum milliþjóðasamninga um alls konar mál, og með hinu sama fullveldi getum við gert fríverzlunarsamninga við Kínverja, Indverja, Japani, Suður-Kóreumenn og þjóðir Norður- og Suður-Ameríku, <b>en með "aðild að Evrópubandalaginu" myndum við missa þann sjálfstæða rétt okkar og yrðum að lúta þvi að vera girt af frá umheiminum með tollmúrum þessa sjálfselska hrörnunarbandalags.</b> Hverra er einangrunin, hr. Bartoszek?

Pawel Bartoszek
Reykjavík
23/03/2009 - Kl. 19:39

Þetta er nú með skrautlegri athugasemdum sem ég hef lesið... að gefa til kynna að Íslendingar með annan bakgrunn en þann íslenska hafi einhvern minni skilning á sjálfstæði og fullveldi og þar með einhvern minni rétt til að tjá sig um málið er auðvitað eitthvað eitthvað mesta vitleysa sem maður hefur heyrt.

(Án þess að komi málinu neitt við þá kemur það pólskættuðum manni spánskt fyrir sjónir að hann viti ekki hvað sjálfstæðisbarátta gangi út á. :) Langaafi minn lést á vestuvígstöðvunum. Afi minn var tekinn til fanga af Rauða hernum. Faðir minn skipulagði fyrstu frjálsu kosningarnar í stúdentaráði Poznan árið 1981 áður en þær voru blásnar af af hernum. Sjálfur var ég 9 ára þegar Pólland varð sjálfstætt, svo ég man sjálfstæðisbaráttu frá fyrstu hendi, en ekki aðeins af frásögnum annarra, en nei... hvað veit ég um fullveldi :) )

Á seinasta ári fengum við nokkur tækifæri til að dæma einangrun eða styrk Íslands á alþjóðavísu. Það fyrsta var kosning í öryggisráðið. Deilan við Breta í gegnum IMF var annað svona atriði. Því miður reyndist brandarinn í seinasta skaupin ansi sannur: "Ísland á enga vini."

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband

Sjónarmið aðildarfélaga og einstaklinga
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700