
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins fór fram um helgina og tókst hann afar vel. Á fundinum var dreift lokaskýrslu Evrópunefndarinnar og er hún aðgengileg hér. Í kjölfarið voru tekin til umfjöllunar drög að ályktun nefndarinnar og lokaútgáfa hennar samþykkt af landsfundarfulltrúum á föstudaginn. Þá ályktun má sjá hér.

Styrmir Gunnarsson leggur til að á landsfundi Sjálfstæðisflokksins verði samþykkt stefnumörkun sem feli í sér að aldrei komi til greina að Íslendingar afsali sér yfirráðum yfir auðlindum þjóðarinnar til annarra ríkja eða ríkjabandalaga og þessi stefnumörkun verði lögð undir atkvæði 45 þúsund flokksbundinna sjálfstæðismanna. Þá verði spurningin hvort Ísland eigi að sækja um aðild lögð undir þjóðaratkvæði og verði aðildarumsókn samþykkt verði niðurstaða slíkra samninga lögð undir nýtt þjóðaratkvæði.