ÞÍN LEIÐ : FORSÍÐAEVRÓPUNEFNDAÐSENDAR GREINAR

Sjálfstæðisflokkurinn á tímamótum

Loftur Altice Þorsteinsson - fimmtudagur, 26. mars 2009

Fáum dylst að Sjálfstæðisflokkurinn stendur á tímamótum. Efnahagshrunið sem skeði á vakt flokksins hverfur ekki af sjálfu sér. Þótt Samfylkingin beri meiri ábyrgð á forsendum efnahagshrunsins en Sjálfstæðisflokkurinn, gerir það byrði flokksins lítt bærilegri. Þótt Samfylkingin hafi staðið vaktina með Sjálfstæðisflokki, er eins og sú fylking hafi engar siðferðis-stoðir til að styðja sig við. Sjálfstæðisflokkurinn einn Íslendskra stjórnmálaflokka hefur gengið í gegnum einstæða sjálfsskoðun, sem hundruð óbreyttra félagsmanna hafa sameinast um.
.
Efnahagshrunið hefur gerbreytt þeirri mynd sem blasir við hinum almenna félaga í Sjálfstæðisflokknum. Þótt grunngildi Sjálfstæðisstefnunnar séu mikilvægari en nokkru sinni fyrr, er framkvæmd stefnunnar á liðnum árum dregin í efa. Almennir Sjálfstæðismenn ætlast nú til þess, að forusta flokksins sé fær um að tala við almenning í landinu, á máli sem almenningur skilur. Grasrót flokksins gerir þá kröfu, að á hana verði hlustað fremur en áður hefur verið gert. Forusta flokksins verður að vera í tengslum við grasrótina og forustan verður að vera grasrótin sjálf.
.
Efnahagskreppan hefur leikið Íslendinga verr en flestar aðrar þjóðir, þótt ekki hafi verið flautað til leiksloka á þeim vettvangi. Ástæðan er sú, að orsakir kreppunnar eru að hluta til innlendar auk þess að vera alþjóðlegar. Hugsanlegt er að stórtæk lögbrot hafi verið framin og við blasir að innlendar eftirlitsstofnanir hafa ekki verið starfi sínu vaxnar. Jafnframt verða deilur okkar við Evrópusambandið (ESB) um Icesave reikninga Landsbankans, að skrifast á þau mistök sem gerð voru 1994, með aðild þjóðarinnar að Evrópska efnahagssvæðinu (EES). Hinar alþjóðlegu orsakir tengjast hins vegar þeirri glæfralegu peningastefnu, sem fylgt hefur verið í stærstum hluta heimsins frá því um 1971. Þessi peningastefna var undirstrikuð hérlendis með setningu laganna um Seðlabankann 2001. Þá samþykku allir Alþingismenn að taka upp "torgreinda peningastefnu", sem sannanlega hlaut að leiða til efnahagshruns.
.
Ýmsar aðrar ástæður hafa verið tilgreindar sem orsakir efnahagshrunsins, en flestar eru þær ímyndun, fyrirsláttur eða blekkingar. Á þeim lista er að finna: virkjanir, einkavæðingu bankanna, skattalækkanir og launahækkanir. Ef við ætlum að bæta lífskjör í landinu, munum við verða að leita allra leiða til atvinnusköpunar. Við verðum að nýta gæði landsins á þann hátt sem við bezt kunnum. Við verðum að koma mosagrónum ríkisstofnunum í hendur almennings og við verðum að nýta kosti hins frjálsa hagkerfis. Hugmyndir um aukinn ríkisrekstur eru raddir úr gröfum kommúnismans. Verkefni nærstu mánuða verður ekki hvað síðst, að nýta fjármagn til arðsemi en ekki eyðslu. Lykilatriði er að færa fjármagn frá ríkisvaldi sem ekki kann annað en eyða verðmætum, til einstaklinga sem eru uppspretta verðmætasköpunar.
.
Seðlabankinn er heldsta tæki ríkisvaldsins til að beita "torgreindri peningastefnu", til að framkalla verðbólgu og þar með stófellda tilfærslu fjármuna. Í megin dráttum er verið að ógilda kjarasamninga og færa fjármuni frá hinum fátæku til hinna ríku. Með stöðugu eða eftir atvikum skykkjóttu falli gjaldmiðilsins, er verið að verðfella allar eignir í landinu, svo að útlendingar eða aðrir sem eiga alvöru gjaldmiðil geti eignast þær fyrir lítið. Þetta verður einungis lagfært með upptöku sterks innlends gjaldmiðils. Undir stjórn Myntráðs er innlendur gjaldmiðill gefinn út, sem gerður er sterkur með baktryggingu í erlendri stoðmynt og nýtur verndar Stjórnarskrárinnar. Þetta fyrirkomulag er 100% öruggt og feikilega sveigjanlegt. Ekki tekur nema 60 - 90 daga að koma á sterkum gjaldmiðli undir Myntráði.
.
Við núverandi aðstæður getur Sjálfstæðisflokkurinn gert mikið gagn með því að fylgja eftir kröfu landsmanna um sterkan innlendan gjaldmiðil, sem tekinn yrði upp strax. Ekki er eftir neinu að bíða, nema að kveða í kútinn þann Samfylkingar-kór sem hrópar á inngöngu í Evrópusambandið, hvað sem það kostar þjóðina. Evrópusambandið hefur hvort sem er gefið yfirlýsingar um að það verði lokaður klúbbur, þar til fundist hafi lækning við þrálátri uppdráttarsýki þess. Í kjölfar sterks gjaldmiðils fylgir stöðugt verðlag, lágir vextir, eignabruninn stöðvast og vísitölubinding lána verður ónauðsynleg, því að gjaldmiðillinn sjálfur verður verðtryggingin.
.
Annað mál sem Sjálfstæðisflokknum ber skylda til að standa vörð um, er sjálfstæði þjóðarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn var stofnaður til þessa hlutskiptis, eins og nafn hans ber augljóst vitni. Ekki kemur til álita að svíkja helgasta tilgang flokksins, með inngöngu í Evrópusambandið. Þeir Sjálfstæðismenn sem leiða hugann að svikum í þessu máli, ættu að leita andlegrar sálusorgar hjá Samfylkingunni, sem er opinber fulltrúi Evrópusambandsins á Íslandi.
.
Það sýnir vel skilningsleysi sumra stjórnmálamanna, að þeir skuli leggja til afnám verðtryggingar. Allir ættu að vita hvernig ástand skapast í verðbólgu-samfélagi þar sem ekki er hægt að verðtryggja fjárskuldbindingar. Þá leitar fjármagnið í óhóflega neytslu eða óarðbæra fjárfestingu. Þeir sem möguleika hafa til, leita með sitt fjármagn í alvöru erlenda gjaldmiðla. Ef við tökum upp sterkan innlendan gjaldmiðil breytast aðstæður á svipstundu. Gjaldmiðill sem heldur verðgildi sínu til lengri tíma, er draumur allra heiðarlegra manna. Þau viðskipti sem menn gera samninga um, halda verðgildi sínu. Aðgangur að erlendum gjaldeyri verður greiður og erlendir bankar munu sækjast eftir að stofna útibú í landinu. Í raun værum við búin að taka upp alþjóðlegan gjaldmiðil, enda er upptaka erlends gjaldmiðils afbrigði af fyrirkomulagi Myntráðs.
.
Sjálfstæðisstefnan hefur leitt þjóðina frá örbirgð til alsnægta. Frjálsir einstaklingar í frjálsu landi, hlýtur að vera hugsjón allra réttþenkjandi manna. Þótt við höfum orðið fyrir þungum áföllum, er öruggt að erfiðleikar okkar eru tímabundnir. Við munum aftur ná vopnum okkar og sækja fram til betri lífskjara. Í komandi kosningum er sérstaklega mikilvægt að hafna forsjárhyggju vinstri flokkanna, sem tóku fullan þátt í að móta afdrifaríkar leikreglur á efnahagssviði. Vinstri flokkarnir bera því fulla ábyrgð á efnahagshruninu, en ætla að nota efnahagsþrengingar þjóðarinnar sér til framdráttar. Valdstjórn undir vestrænum socialisma er engu skárra en valdstjórn undir austrænum kommúnisma.
.
22.marz 2009.
.
Loftur Altice Þorsteinsson, verkfræðingur og vísindakennari.
Höfundur hefur boðið sig fram til formennsku í Sjálfstæðisflokknum.

 

Bæta við athugasemd

Vinsamlegast ritið fullt nafn, ekki gælunöfn eða skammstafanir
 
Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband

Sjónarmið aðildarfélaga og einstaklinga
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700