Það er alveg skelfilegt að við skulum vera eyða tíma og kröftum í dag í þessa evrópuumræðu, fyrir það fyrsta þá er enginn möguleiki á að við fáum að koma á fjórum fótum þar inn, við þurfum að taka til í okkar ranni áður, það er það sem við eigum eða öllu heldur ættum að vera að eyða okkar kröftum í og veitir ekki af.
En úr því sem komið er og til að komast út úr þessu bulli og menn fari að snúa sér að alvöru málsins, þá tel ég rétt að farið verði í aðildarviðræður með skýr markmið um að ekki verði kvikað frá þeirri kröfu, að við höldum fullum yfirráðum yfir okkar auðlindum.
Samhliða því verði aðrir möguleikar kannaðir með að taka upp annann gjaldmiðil td. dollar. Rökin hjá sumum á móti því er að meirihluti okkar viðskipta eru í evrum, en er endilega víst að svo verði um aldur og æfi.
Við skulum þá bara leggja frekari áherslu á asíumarkað við þyrftum sennilega ekki að ná nema þokkalegri markaðshlutdeild þar í svona eins og einni götu.