Taktu þátt í að móta framtíðina!

Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins mun starfa fram að landsfundi flokksins 26. mars 2009 og skoða stöðu Íslands gagnvart Evrópusambandinu, ríkjum Evrópu og valkostum Íslands í alþjóðasamstarfinu. Nefndin skilar af sér skýrslu til landsfundar og á grundvelli hennar mun landsfundur flokksins meta hvort framtíð Íslands sé betur borgið innan Evrópusambandsins en utan þess. Brýnt er að sem flestir komi að starfi nefndarinnar, m.a. hér á vefnum og tjái sig um þær tillögur sem unnið er með auk þess sem nefndin mun standa fyrir opnum fundum. Við hvetjum þig til að taka þátt í að móta framtíðina með okkur.

Fréttir

Lokaskýrsla og ályktun Evrópunefndar liggur fyrir

31. mars 2009

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins fór fram um helgina og tókst hann afar vel. Á fundinum var dreift lokaskýrslu Evrópunefndarinnar og er hún aðgengileg hér. Í kjölfarið voru tekin til umfjöllunar drög að ályktun nefndarinnar og lokaútgáfa hennar samþykkt af landsfundarfulltrúum á föstudaginn. Þá ályktun má sjá hér.

 
Pistlar

Látum lýðræðið ráða ferðinni

26. mars 2009

Styrmir Gunnarsson leggur til að á landsfundi Sjálfstæðisflokksins verði samþykkt stefnumörkun sem feli í sér að aldrei komi til greina að Íslendingar afsali sér yfirráðum yfir auðlindum þjóðarinnar til annarra ríkja eða ríkjabandalaga og þessi stefnumörkun verði lögð undir atkvæði 45 þúsund flokksbundinna sjálfstæðismanna. Þá verði spurningin hvort Ísland eigi að sækja um aðild lögð undir þjóðaratkvæði og verði aðildarumsókn samþykkt verði niðurstaða slíkra samninga lögð undir nýtt þjóðaratkvæði.

 

 

Drög að ályktunum
3. drög - 20. janúar 2009
2. drög - 20. janúar 2009
3. drög - 16. janúar 2009
Fundargerðir
1. fundur - 19. desember 2008
2. fundur - 18. desember 2008
1. fundur - 18. desember 2008
Á döfinni
 
Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins
Vefur Sjálfstæðisflokksins  -  Hafa samband

Sjónarmið aðildarfélaga og einstaklinga
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1 - 105 Reykjavík - 515 1700